Tónleikar tónleikar tónleikar!
Við verðum með tónleika á Ölveri 22. mars!
Á laugardaginn ætlum við að syngja um hjónabönd og öskuhauga, lessur og skápaferðir, gagnkynhneigt lið og heillandi handverkfæri, gamlar og nýjar kærustur, hrukkóttar lessur, laglegar lessur og og og.... vorum við búnar að nefna lessur? Við fjöllum þó ekki bara um lessur heldur um allan regnbogann því við dýrkum fjölbreytileika!
Ef þú ert hinsegin þá mælum við með að kaupa miða, ef þú ert kona þá mælum við með að kaupa miða, ef þú ert ekki hinsegin þá mælum við sérstaklega með að kaupa miða, ef þú ert kvár eða karl þá mælum við með að kaupa miða og ef þér finnst gaman að hafa gaman... þá mælum við með að Kaupa miða